Samviskulaus glæpahundur........

Samviskulaus glæpahundur........af verstu sort......allt öðrum að kenna.......
mbl.is Fengu ekki að flytja hlutabréf í félög
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Veruleikafirring á hæsta stigi.......

Menn eru orðnir gjörsamlega veruleikafirrtir......þvílík óskammfeilni!!!!....Út með þessar gráðugu afætur ekki seinna en strax!!!!
mbl.is Stjórnendur vilja milljarða í bónus
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Margrét klúðrar feitt......

Ótrúlegt dómgreindarleysi, sem Margrét sýnir, annað hvort er þetta einstaklega bjálfalega gert af konu, sem virðist vera a.m.k. meðalgreind, eða þetta er vísvitandi rýtingur í bak Þráins. Hvort sem er, þá á hún sér ekki viðreisnarvon eftir þetta....... og reyndar enginn þeirra í hinni heilögu þrenningu Borgaraflokksins.
mbl.is Þráinn segir sig úr þingflokki
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Boycottum Nýja Kaupþing!!!!!

Ég hvet hér með alla til að loka öllum reikningum sínum í Nýja Kaupþingi sem og öllum öðrum viðskiptum, svo fremi, sem þeim er það mögulegt. Þetta er eina leið fólksins til að sýna fyrirlitningu sína og viðbjóð á gerðum þessara landráðamanna. Ekki vill maður beinlínis hvetja fólk til þess að brenna kofann ofan af þessu hyski þó svo að það hafi hvarflað að mörgum. Þetta er gjörsamlega samviskulaust pakk, Finnur og félagar er búinn að gera langt upp á bak...... þeir eru litlu betri en félagarnir Sigurður og Hreiðar Már...... hvar er gagnsæið, nýju heiðarlegu vinnubrögðin???? Það mun líða mjög langur tími þangað til nokkur Íslendingur treystir Íslenskum bönkum eða bankamönnum og þá á ég við yfirstjórnendur, ekki vil ég sakast við fólkið í fremstu víglínunni..... græðgin, hagsmunatengslin og leyndin er enn söm við sig......
mbl.is Kaupþing fer fram á lögbann
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Davíð Oddsson....ómerkilegri en saursletta á rasskinn andskotans......

Er maðurinn ekki búinn að klúðra nógu miklu fyrir þjóðinni? Meinhyrnt og margfyndið miðlungsskáld, sem í krafti óneitanlega mikils sannfæringarkrafts, feiknalegs hroka og síendurtekinna einfaldra frasa hefur náð að dáleiða hluta sjálfstæðismanna þannig að þeir geta ekki hugsað skýrt. Það er fyrir löngu búið að svifta hulunni af ódýrum brögðum og almennu getuleysi Davíðs svo að frægt er orðið um alla heimsbyggðina. Þrátt fyrir það hlustar dáleiddur söfnuðurinn ekki á það, sem blasir við öllum öðrum. Maður, sem hefur slíka þörf fyrir að hjakka sífellt á því hversu einstaklega heiðarlegur hann sé, vandaður í alla staði, réttsýnn og sérlega fróður um flesta hluti......ja hann er það sjaldnast. Það er svo einfalt. Ég kaus Sjálfstæðisflokkinn í síðustu kosningum....en það verður langt þangað til ég geri það aftur. Eignamenn Íslands og Lénsherrar kvótans munu reyna að halda sínum heljartökum á auðlindum landsmanna. Samherji, HBGrandi og Brim leiða þjófaflokkana, sem arðræna þjóðina á meðan leiguliðarnir róa. Ásýnd Sjálfstæðisflokksins hefur fríkkað mjög við formannsskiptin en bak við fagurt yfirborðið er sama gamla pakkið, sem vill halda völdum sínum óbreyttum svo þjófnaðurinn geti haldið áfram. Burt með þessa auðdóna, þeir eru engu betri en útrásarvíkingarnir, sem sigldu með okkur í strand undir eftirliti Sjálfstæðisflokksins.

Ekki pislarvottur heldur Quisling....

Gereyðandi Islands opinberar sitt skitlega eðli fyrir alþjoð. Orð hans segja allt, sem segja þarf um oþverrann innra með honum. Það versta er að hann ser ekkert athugavert við þetta sjalfur, maðurinn er siðblindur þratt fyrir að klifa sinkt og heilagt a þvi hversu heiðarlegur hann se. Einstaklega aumkunarvert. Ekki einu sinni hans eigin flokksmenn eru ohultir fyrir geðsyki hans. Og að landsfundargestir skuli klappa fyrir þessu vekur með manni mikinn ugg. Það er augljoslega mikið að i flokknum.(Afsakið kommuskortinn)

Hryggileg ræða vitfirrings..........

Það er í meira lagi dapurlegt að Davíð skuli vera að enda ferilinn með þessum hætti. Æstum aðdáendum finnst þetta voða fyndið og hnyttið en langflestum finnst þetta rugl manns, sem er kominn á ystu brún sturlunar, manns, sem með engu móti getur metið stöðuna eins og hún raunverulega er. Halda menn að þetta laði kjósendur að sjálfstæðisflokknum? Aumkunarvert í meira lagi, það hefði aldrei átt að hleypa honum í ræðustólinn.
mbl.is Víkingar með Samfylkingu
Tenging við þessa frétt hefur verið rofin vegna kvartana.

Landsfundur Auðmanna.

Ákaflega er hún dapurleg brottför Geirs Haarde úr íslenskum stjórnmálum. Þvílíkur hugleysingi. Horfir framan í þjóðina og kennir flestum öðrum um en sínum sýkta flokki. Eftir að Sjálfstæðisflokkurinn hafði á síðastliðnum átján árum skapað þær aðstæður, sem rústuðu þjóðinni, reynir hann að kenna Samfylkingunni um allt það, sem miður hefur farið eftir hrunið. Gungan Geir! Hann er því miður ekki það karlmenni að hann geti axlað sína ábyrgð í þessum málum frekar en hinn hinn viti skerti fyrrum formaður flokksins, sem unnið hefur þjóð sinni geysilegt tjón með gegndarlausu klúðri sínu undanfarin ár. Ekki það að nokkur sjálfstæðismaður geti horfst í augu við það að átrúnaðargoðinu forna hafi orðið nokkur skapaður hlutur á í messunni. Slík er veruleikafirring Sjálfstæðisflokksins. Það virðist ljóst að Sjálfstæðisflokkurinn ætlar að einangra þjóðina hér norður í hafi með sína vesælu krónu. Nafn flokksins mun snúast í andhverfu sína því það verður flest annað en sjálfstæði í boði með áframhaldandi vaxtaokri, sérhagsmunagæslu og ónýtri krónu. En eins og alltaf í Flokknum eina, þá eru það stóreignamennirnir og sægreifarnir, sem eiga síðasta orðið og munu gera allt til að vernda sína hagsmuni, sem fara ekki saman við hagsmuni þjóðarinnar frekar en fyrri daginn. Það þarf ekki annað en að líta á stórglæsilegan bílaflotann fyrir utan Laugardalshöllina til að sjá að þarna eru auðmenn þjóðarinnar saman komnir. Refsum því Sjálfstæðisflokknum í komandi kosningum eins og hann á skilið!
mbl.is Samfylkingin brotnaði undan storminum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Að "klína" sökinni á Sjálfstæðisflokkinn

Sigurður Kári er því miður alvarleg veruleikafirrtur eins og sést á því, sem hann lætur út úr sér þessa dagana. Það er alveg óhætt að klína því á hann að  þessi sléttgreiddi og ávallt vel strokni þingmaður væri betur kominn bak við borðið hjá Sævari Karli en í Þinginu. Hrokann hefur hann frá læriföður sínum Davíð Oddssyni, en gáfurnar skortir hann svo um munar. Við höfum ekkert við svona gjammandi, getulausa smápjakka, sem bókstaflega ekkert hafa gert af viti á Alþingi og þvælast bara fyrir núna. Sendum hann með skófar á botninum beint út af Alþingi!
mbl.is Þýðir ekki að klína sök á Sjálfstæðisflokkinn
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Sorglega grein, þvílík veruleikafirring.

Það er sorglegt að horfa upp á Kjartan Gunnarsson rita þvílíka þvælu, þetta er víst kallað að kasta steinum úr glerhúsi. Þvílík veruleikafirring......blindir fylgjendur Davíðs geta aldrei séð nokkurn blett né hrukku á hans gjörðum þrátt fyrir að þær séu beinlínis æpandi og augljósar öllum öðrum.
mbl.is Pólitískar hreinsanir og ofsóknir
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Fyrri síða

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband