Davíð Oddsson....ómerkilegri en saursletta á rasskinn andskotans......

Er maðurinn ekki búinn að klúðra nógu miklu fyrir þjóðinni? Meinhyrnt og margfyndið miðlungsskáld, sem í krafti óneitanlega mikils sannfæringarkrafts, feiknalegs hroka og síendurtekinna einfaldra frasa hefur náð að dáleiða hluta sjálfstæðismanna þannig að þeir geta ekki hugsað skýrt. Það er fyrir löngu búið að svifta hulunni af ódýrum brögðum og almennu getuleysi Davíðs svo að frægt er orðið um alla heimsbyggðina. Þrátt fyrir það hlustar dáleiddur söfnuðurinn ekki á það, sem blasir við öllum öðrum. Maður, sem hefur slíka þörf fyrir að hjakka sífellt á því hversu einstaklega heiðarlegur hann sé, vandaður í alla staði, réttsýnn og sérlega fróður um flesta hluti......ja hann er það sjaldnast. Það er svo einfalt. Ég kaus Sjálfstæðisflokkinn í síðustu kosningum....en það verður langt þangað til ég geri það aftur. Eignamenn Íslands og Lénsherrar kvótans munu reyna að halda sínum heljartökum á auðlindum landsmanna. Samherji, HBGrandi og Brim leiða þjófaflokkana, sem arðræna þjóðina á meðan leiguliðarnir róa. Ásýnd Sjálfstæðisflokksins hefur fríkkað mjög við formannsskiptin en bak við fagurt yfirborðið er sama gamla pakkið, sem vill halda völdum sínum óbreyttum svo þjófnaðurinn geti haldið áfram. Burt með þessa auðdóna, þeir eru engu betri en útrásarvíkingarnir, sem sigldu með okkur í strand undir eftirliti Sjálfstæðisflokksins.

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband