"Halda gjaldmiðlinum veikum"??

Sigmundur Davíð hlýtur að hafa fengið rakettu í hausinn á gamlaársdag......hann gerir ekkert annað en að bulla maðurinn....."halda gjaldmiðlinum veikum"?????.....lumar Sigmundur Davíð kannske á einhverjum pottþéttum ráðum til að styrkja krónuna??  Einhver ráð, sem enginn annar veit um eða hefur nefnt?? Eitthvað, sem AGS reynir að halda leyndu fyrir okkur í lengstu lög??? Þú ert svo mikið fífl Sigmundur að það sætir stöðugt meiri undun að þú skulir vera formaður Frammaranna.....var virkilega ekkert annað í boði??....Jú annars....Höskuldur!.....nei seinnilega er jafnvel Sigmundur illskárri. Aumingja Framsóknarflokkurinn....vonandi bera þeir gæfu til þessu að skipta um formann og fá í sætið Guðmund Steingrímsson svo þeir hverfi ekki alveg. Þeir eru líka orðnir hættulega líkir Sjálfstæðisflokknum, það er erfitt að sjá muninn á honum og Bjarna Ben. núna.
mbl.is Segir nýtt lánshæfismat S&P mjög sérkennilegt
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Bölvun trúarbragða......

Það sýnir sig aftur og aftur hve þessi blessuðu trúarbrögð valda miklum skaða í heiminum og Múhameðstrúin er sú versta af mörgum slæmum. Í gegnum aldirnar og allt fram á þennan dag hefur gengið á með linnulausum morðum, limlestingum og átökum innan trúarbragða jafnt sem á milli ólíkra trúarbragða. Alls konar viðbjóður hefur þrifist í skjóli kirkjunnar og má þar helst nefna það skjól, sem barnaníðingar hafa haft þar, oftar en ekki með vitund yfirmanna sinna. Maður getur nefnt alla þá fjármuni, sem kirkjan hefur sogað til sín eða jafnvel stolið....fjármunir, sem betur hefðu farið til menntunar, uppbyggingar eða jafnvel brauðfæðingar fátæklinga í stað þess að notast í hallelújaæfingar.  Að sjá kirkjunnar menn skrýdda dýrum klæðum í skrauti hlöðnum kirkjum meðan rétt fyrir utan dyrnar þrífst fátækur múgurinn....þannig var þetta fram eftir öldum og er sjálfsagt víða enn þannig. Hins vegar tel ég að boðorðin tíu úr biblíunni séu hið besta mál og sjálfsagt að menn lifi eftir þeim eftir bestu getu....en restinni má henda, eða í besta lagi njóta sem barnalegs ævintýrs, sem því miður hefur valdið býsna miklum skaða. Hérlendis á að hafa algeran aðskilnað á milli ríkis og kirkju! Það fólk, sem trúir á þessi ævintýri og notar þessi átrúnaðarhús, á að borga fyrir þetta, ekki hinn almenni skattborgari.
mbl.is Fagna árás á danskan teiknara
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Fáheyrð rök Sigmundar Davíðs.....

Þetta eru bjánalegustu rök, sem ég hef nokkru sinni heyrt!! Sigmundur Davíð er bara með framsóknargrænt gras á milli eyrnanna.....að þetta skuli vera formaður stjórnmálaflokks!!.....þvílík hneisa!! Öllu snúið við!!!
mbl.is „Útilokað að hann geti staðfest lögin“
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Firring útgefanda......Óskar óskar sér......

Það var ekki við öðru að búast en þessum viðbrögðum frá Óskari......."menn sem ekkert hafa til saka unnið og sæta engum rannsóknum eða ákærum, hafi heimild  til að starfa á fjölmiðli eða tjá sig um málefni líðandi stundar. Nær væri að þeir læsu beitta og gagnrýna umfjöllun Morgunblaðsins(!!) og mbl.is og drægu svo ályktanir af verkum manna"......svo mörg voru þau orð......ritstjóri, sem er eins invikleraður, innmúraður og innvígður og mögulegt er í Hrunið....að gefa sér það að hann eigi engan þátt í því, er ósk- og þráhyggja á hæsta stigi svo ekki sé sagt heimskuleg. Morgunblaðið er náttúrulega orðið að athlægi fyrir að hafa ritstjóra, sem hefur það eina markmið að endurskrifa sögu Hrunsins, sér í hag vitaskuld. Öll hans skrif eru lituð af þessari staðreynd! Ég sem fyrrverandi áskrifandi Morgunblaðsins fullyrði að jafnvel DV er orðið mun betra, gagnrýnna og margtækara blað en Morgunblaðið. Þeir þora að gagnrýna alla, bæði stjórn og stjórnarandstöðu, sem og alla útrásarvíkinga, ekki bara þá, sem þeim er persónulega í nöp við.....eitthvað annað en Morgunblaðið, sem er orðinn ekkert annað en últra hægri sinnaður auðhyggjusnepill, sem gengur erinda kúlulána- og niðurrifsfólks! In your face Óskar!
mbl.is Segir norræn blaðamannafélög fara með rangt mál
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Landþjófar......

Ekki nóg með að Gyðingarnir haldi áfram að murka lífið smám saman úr Palestínumönnum, heldur hafa þeir stolið af þeim geysimiklum landsvæðum í gegnum árin..... hreint ótrúlegt hvað þeir komast upp með vegna Helfararinnar...... sem ég ætla svo sannarlega ekki að gera lítið úr. En það gengur ekki að þeir komist endalaust upp með næstum hvað sem er.....og kalli alla gagnrýni Gyðingahatur. Ég dáðist að þessari þjóð fyrir margt löngu en sú aðdáun hefur snúist upp í fyrirlitningu. Fyrirlitningu á mönnum, sem í skjóli Bandaríkjanna, hafa nánast framið þjóðarmorð á Palestínumönnum. Það er ekki hægt að áfellast Palestínumenn fyrir skæruhernað sinn, þeir eru að berjast á þann EINA máta, sem þeir geta gegn hernaðarofurveldi, sem stendur þeim langtum framar að öllum búnaði. Enda ríkulega styrktir af Bandarískum Gyðingum. Það er ekki hægt að líkja aðstöðu Palestínumanna við neitt annað en fangelsi ....... fangelsi, sem ekki neinar líkur eru á að þeir losni úr í bráð. Mun líklegra er að Gyðingarnir reyni a.m.k. að herða tökin enn um sinn í þeirri von að kæfa skæruhernaðinn en sagan sýnir að slíkt er vonlaust. Skömm Ísraelsmann er mikil og afhjúpandi. Helförin afsakar ekki þeirra gjörðir. Þær ýta miklu frekar undir þá staðalímynd, sem menn hafa gjarnan í flimtingum af gyðingum og þeir sjálfir eru ekki hrifnir af, vægast sagt.....Fagin hvað??
mbl.is Leyfa stækkun landnemabyggðar
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Skipulagsbreytingar hjá Árvakri.....

Köld og blá hönd dauðans hefur lagst á Morgunblaðið........
mbl.is Uppsagnir hjá Árvakri
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Bjarni Ben. jr.

Aumasti formaður Sjálfstæðisflokksins frá upphafi. Kominn í embættið út á nafnið og ættina. Fyrsti hryggleysingi ættarinnar..... Mun halda áfram að reyna að tryggja ítök ættarinnar og annarra tengdra auðmanna.  Mun aftur mæta á kosningastað í Toyotu með fallegu fjölskylduna sína en skilja Range Roverinn eftir heima. Alltaf jafn snyrtilegur og velgreiddur í dýru jakkafötunum sínum. Á ekkert sameiginlegt með öllum þorra íslensku þjóðarinnar. Mun alltaf gera allt hvað hann getur til að komast í ríkisstjórn, jafnvel þó svo það kosti þjóð hans mikið. Tækifærissinni fram í fingurgómana.

Flokkurinn, sem ber hina raunverulegu ábyrgð.....en getur ekki horfst í augu við hana......

Upphafsflokkur Icesave firrir sig allri ábyrgð og þykist enn einu sinni vera eini flokkurinn, sem bjargað geti þjóðinni, verandi nýbúinn að rústa henni.......firringin og forherðingin algjör.....
mbl.is Víki verði fyrirvörum hafnað
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Veruleikafirrings Hólmsteinsins.....

Maðurinn er svo gjörsamlega veruleikafirrtur að maður hefur aldrei séð annað eins.....hann lifir á einhverri allt annarri plánetu en við hin. Þar sem orð Davíðs eru eini sannleikurinn og þyngdar sinnar virði í gulli. Þvílikt tvíeyki.....Hannes er svo einstaklega aumkunarverður.....og hefur unnið landi sínu ómetanlegt tjón. Farðu Hannes......til dæmis til Suður ameríku og haltu þig þar.
mbl.is Aðsúgur að Hannesi Hólmsteini
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Fíflalæti sjálfstæðismanna.....

Ótrúleg forherðing og fíflalæti Sjálfstæðismanna, upphafsmanna Icesave samninganna. Það er ekki hægt að bera nokkra virðingu fyrir þessum dindlum.
mbl.is Gegn hagsmunum Íslands
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Fyrri síða | Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband