Boycottum Nýja Kaupþing!!!!!

Ég hvet hér með alla til að loka öllum reikningum sínum í Nýja Kaupþingi sem og öllum öðrum viðskiptum, svo fremi, sem þeim er það mögulegt. Þetta er eina leið fólksins til að sýna fyrirlitningu sína og viðbjóð á gerðum þessara landráðamanna. Ekki vill maður beinlínis hvetja fólk til þess að brenna kofann ofan af þessu hyski þó svo að það hafi hvarflað að mörgum. Þetta er gjörsamlega samviskulaust pakk, Finnur og félagar er búinn að gera langt upp á bak...... þeir eru litlu betri en félagarnir Sigurður og Hreiðar Már...... hvar er gagnsæið, nýju heiðarlegu vinnubrögðin???? Það mun líða mjög langur tími þangað til nokkur Íslendingur treystir Íslenskum bönkum eða bankamönnum og þá á ég við yfirstjórnendur, ekki vil ég sakast við fólkið í fremstu víglínunni..... græðgin, hagsmunatengslin og leyndin er enn söm við sig......
mbl.is Kaupþing fer fram á lögbann
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Guðmundur Ásgeirsson

Til fróðleiks fyrir þá sem vilja koma á framfæri mótmælum með beinum hætti þá eru hérna upplýsingar um viðkomandi tengiliði:

Koma svo... setja póstþjónana þeirra á hliðina! (ekki gleyma viðhenginu)

Guðmundur Ásgeirsson, 2.8.2009 kl. 00:25

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband