Gervilimir......Gerviland

Enn einu sinni sýna Ísraelsmenn í verki hug sinn, sinn illa og blóði drifna hug. Lágkúran ríður ekki við einteyming hjá "guðs útvöldu þjóð". Að koma í veg fyrir að gervilimir komist til þeirra, sem þá þurfa, er verknaður, sem lyktar af óþverraskap. Enda virðing mín fyrir þessari hrokafullu, árásargjörnu og sjálfselsku þjóð löngu horfin í veður og vind. "guðs útvalda þjóð"?? Segðu mér annan jafngóðan!!!
mbl.is Össur fordæmir Ísraelsstjórn
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Jón Snæbjörnsson

Fidel Castro fyrrverandi forseti Kúbu varði tilverurétt Ísraelsríkis í viðtali við bandaríska tímaritið The Atlantic.

Hann ávítaði einnig Mahmoud Ahmadinejad forseta Írans. Sagði að hann verði að skilja ótta gyðinga um örlög sín í ljósi sögunnar. Íranar ættu að skilja afleiðingarnar af trúarlegum andsemetisma.

Castro var svosem ekkert yfir sig hrifinn af hægri stjórninni í Ísrael, en stuðningur hans við þjóðina var einlægur.

Jeffrey Goldberg blaðamaður The Atlantic byrjaði viðtalið á því að spyrja Castro hvort hann teldi að Ísrael ætti tilverurétt.

„Án nokkurs vafa," sagði forsetinn.

Hann hélt áfram og sagði; „Ég held að engir hafi verið rægðir jafn mikið og gyðingar. Miklu meira en múslimar. Þeir eru rægðir miklu meira en múslimar vegna þess að þeim er kennt um allt. Enginn kennir múslimum um neitt."

Castro segir að í 2000 ár hafi gyðingar mátt þola skelfilegt einelti og fjöldamorð. Hann furðar sig á að þeir skuli hafa staðið þetta allt af sér. Hann telur að menning þeirra og trú hafi haldið þeim saman sem þjóð.

„Líf gyðinga hefur verið miklu erfiðara en okkar. Það er ekkert til sem hægt er að bera saman við helförina," segir hinn aldni leiðtogi.

Jón Snæbjörnsson, 28.9.2010 kl. 10:29

2 Smámynd: Vésteinn Valgarðsson

Þessi athugasemd er ekki í neinu samhengi við bloggið sem hún er skrifuð við.

Vésteinn Valgarðsson, 28.9.2010 kl. 13:30

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband