Greindarskert Sjálfstæðiskona......

Hún er greinilega hálf heiladauð þessi Sjálfstæðiskona.....verður ekki þá einnig að geta snillinganna, sem skópu Icesave?? Kjartan Gunnarsson, Sigurjón, Bjöggana, Davíð o.fl.?? Nei, hún ætlar að setja þarna nöfn þeirra, sem stóðu skítugir upp fyrir axlir að hreinsa flórinn eftir þessa ræfla.... svei þér bjáninn þinn!! Samvisku- og ábyrgðarlaust pakk!! Gefið mæðrastyrksnefnd frekar peninginn en að henda honum í svona fíflalæti.
mbl.is Iceslave safna 800 þúsundum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

sammála þér , þetta er afar barnalegt, hverjir eru svo vitlausir að gefa pening í svona? vonandi verður ekki gefið leyfi til að setja þetta á áberandi stað..þessi kelling getur haft þetta í stofunni hjá sér.

thorsteinn (IP-tala skráð) 3.1.2010 kl. 23:27

2 Smámynd: Jón Valur Jensson

Á hvern hátt skóp Davíð Icesave, Jakob, upplýstu mig sem fyrst um það.

Þú mátt líka taka það fram, hvort hann hafi gert það viljandi og meðvitað.

Sigríður Andersen er svo sannarlega allt annað en greindarskert, bráðgáfuð er hún, en þú virðist ekki þekkja neitt til hennar.

Jón Valur Jensson, 4.1.2010 kl. 00:55

3 identicon

SVEI ÞÉR BJÁLFINN ÞINN FYRIR ORÐSAUR ÞINN, JÓN!

Þér væri vísast að halda þér þöglum frekar en gera þig að fífli í opinberri umræðu með þessum hætti.

Skammarlegt!

Kolbeinn (IP-tala skráð) 4.1.2010 kl. 00:59

4 Smámynd: Jón Valur Jensson

Viltu ekki frekar svara þessum einföldu spurningum, Kolbeinn minn, og hvers son ert þú? Það hlýtur annars að vera létt verk að svara þessu, því að þið virðizt svo vissir, að þið hljótið að telja þetta augljóst, og þá er ég ekki að ætlast til mikils af ykkur, og þá ættuð þið bara að þakka mér fyrir tækifærið sem þið fáið til að sanna ykkar mál, ekki satt?

Jón Valur Jensson, 4.1.2010 kl. 01:10

5 identicon

En alveg hreint makalaust, Jón Valur Jónsson, að þú skyldir taka til þín reiðiskammir mínar í garð nafna þíns, Jóns Kristjánssonar. Finnst þér virkilega að athugasemd þín við orðljótan pistil hans geti flokkast undir "orðsaur"? Eða erum við sem höfum leyft okkur að andmæla múgsefjun undanfarins misseris nú orðnir svo bældir að við teljum ekki fráleitt að það eitt að við opnum munninn geti flokkast undir óhæfu?

En fyrst spurt er, þá er ég Kolbeinsson. Það breytir hins vegar litlu um skoðanir mínar.

Kolbeinn (IP-tala skráð) 4.1.2010 kl. 01:31

6 Smámynd: Jón Valur Jensson

Kærar þakkir fyrir þetta innlegg þitt, Kolbeinn, nú rennur upp fyrir mér ljós!

Ég met þetta mikils, að ég var ekki hafður þarna fyrir rangri sök.

Og gleðilegt nýtt ár, allir lesendur!

Jón Valur Jensson, 4.1.2010 kl. 01:44

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband