10.2.2009 | 15:32
Að "klína" sökinni á Sjálfstæðisflokkinn
Sigurður Kári er því miður alvarleg veruleikafirrtur eins og sést á því, sem hann lætur út úr sér þessa dagana. Það er alveg óhætt að klína því á hann að þessi sléttgreiddi og ávallt vel strokni þingmaður væri betur kominn bak við borðið hjá Sævari Karli en í Þinginu. Hrokann hefur hann frá læriföður sínum Davíð Oddssyni, en gáfurnar skortir hann svo um munar. Við höfum ekkert við svona gjammandi, getulausa smápjakka, sem bókstaflega ekkert hafa gert af viti á Alþingi og þvælast bara fyrir núna. Sendum hann með skófar á botninum beint út af Alþingi!
Þýðir ekki að klína sök á Sjálfstæðisflokkinn | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Athugasemdir
Það er mikil afneitun í þjóðfélaginu í dag og margir að kasta úr "glerhúsum".
Nú er margir af þessum "áhrifamönnum" í þjóðfélaginu að sýna "sitt rétta andlit" og það verður ekki falið "með fínum fötum".
Birgir Ármannsson félagi Sigurðar, er nú hreinlega ennþá "fígúrulegri" en Sigurður
Páll A. Þorgeirsson (IP-tala skráð) 10.2.2009 kl. 16:27
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.