9.12.2011 | 21:09
Enn eitt afreksverkið hjá Ísraelsmönnum......
Morð Ísraelsmanna halda áfram.....12 látnir og hugsanlega fleiri.....væri forvitnilegt að vita um hlutfall látinna Palestínumanna og Ísraelsmanna....ég veit reyndar að hlutfallið er Palestínumönnum vægast sagt í óhag, svo nemur einhverjum tugum Palestínumanna á móti hverjum Ísraelsmanni enda vitum við öll að líf Ísraelsmanns er miklu meira virði en Palestínumanns. Og talsmaður hersins kvartar yfir því að stjórnendur Hamas starfi inni í íbúðarhverfi. Það var og......auðvitað vildi hann miklu frekar hafa þá alla saman í einum hnapp á opnu svæði þar sem hægt væri að stúta þeim öllum í einu. En í stríði lítilmagnans gegn einhverri afkastamestu morðmaskínu nútímans er ekki sá háttur hafur á, að sjálfsögðu ekki. Menn gera það sem þeir geta. Ef alþjóðasamfélagið fylgdist ekki vel með Gasa svæðinu væri hætt við að landþjófarnir væru fyrir löngu búnir að hreinsa Palestínumenn út af svæðinu. Það er mikil skömm fyrir Bandaríkjamenn hve Repúblikana ruslið þar heldur hlífiskildi yfir Ísraelsmönnum. Og áfram halda Ísraelsmenn að þjarma að Palestínumönnum, stela landinu af þeim, myrða þá og kúga efnahagslega. Þetta nálgast stöðugt meir og meir að verða sambærilegt við illvirki Nasista á Gyðingum. Vonandi tekst að stoppa þessa "Guðs útvöldu" þjóð áður en það skeður. En hendur hennar eru þegar þaktar blóði.....
Ísraelar drepa feðga | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Athugasemdir
Jónatan Karlsson, 10.12.2011 kl. 11:11
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.